Sú sem minnkandi fer..

þriðjudagur, nóvember 16, 2004

Nýtt heimili

Ákvað að flytja mig um set. Nýja ég

sunnudagur, nóvember 14, 2004

Sparkaði í rassinn á mér

Nú þýddi þetta ekki lengur, hunskaðist af stað í ræktina um 11 leitið og sé ekki eftir því. Var í þvílíkri baráttu við púkana tvo ,, farðu - ekki fara , nenntu - ekki nenna". Var búin að kaupa mér hedphone og þvílíkur munur tíminn bara flaug, ég hafði eitthvað að gera. Nú ætla ég að setjast yfir sjónvarpsdagskránna og athuga hvenær eru þætti sem ég hef áhuga á og fara svo á þeim tíma og horfa og ræktast um leið. Sneddý..
Er afar sátt við samsetningu æfinga hjá mér, ekkert of erfitt til að byrja með og ég bæti þá bara við göngutíma ef mér finnst þetta of létt.

föstudagur, nóvember 12, 2004

LÖT

púff, það er ég og virðist ekkert vera á þeim buxunum að breyta þeirri staðreynd hjá mér. Er ekkert búin að fara í ræktina og ekkert búin að gera í því að breyta matarræðinu. Svo er nú það og það er nú svo. Veit upp á mig skömmina og er langt frá því að vera sátt við mig, veit ekki hvað þarf til þannig að ég komi mér af stað og hætti að vera í æji-ég-nenni-þessu-ekki/æji-ég-á-svo-bágt gírnum. Mig langar en langar mig nóg það er spuringin.

þriðjudagur, nóvember 09, 2004

Komin með lykilinn (að leyndarmálinu??)

Jamm og já, fór í sportarann í morgun og átti þar stefnumót við einkaþjálfara sem ætlaði að kenna imbanum mér á tæki og tól Sporthússins. Fékk sama gaur og Fresnius fékk og leist nú ekki á blikuna þar sem hún sagðist ekki hafa fengið svo mikið út úr honum. Ég ákvað því að spila mig extra dum og sagðist ekkert kunna, geta eða skilja og vitið menn hann stjanaði undir rassinum á mér (og er það nú ekkert smá stykki skal ég segja ykkur). Hann byrjaði á því að láta mig stíga á viktina (115 kg) og svo mældi hann fituprósentuna (man ekki töluna en falleg var hún ekki), hlakka til að saxa það helvíti niður!!! Svo fór hann hring með mér í tækjunum, sýndi mér hvernig ég ætti að stilla, sitja rétt og lyfta, toga og teyja rétt. Þannig að í dag er ég með á hreinu í hvaða tæki ég á að fara og hvernig þau virka og svo er að sjá hvernig mér gengur að muna þetta allt þegar á hólminn verður komið, en þjálfi sagði að það væru alltaf einhverjir þjálfarar í salnum sem gætu þá leiðbeint mér ef ég væri algjörlega lost. Ég er sátt við þá þjónustu sem ég fékk í þessum prósess.
Í sameiningu ákváðum við að fyrsti mánuðurinn minn yrði afar rólegur, þar sem ég væri svoddan græningi í þessu öllu ;-)Planið hljómar þá þannig hjá mér:
Tæki 2x í viku
Ganga 1X í viku (þá annað hvort úti í guðs grænni eða á hlaupabretti)
Jóga 2x í viku

Lykillinn er þá forritaður þannig að ég á að fara 2x í tæki og svo bæti ég hinu sjálf á lykilinn, og ég ætla að standa mig vel í því að gera þetta allt saman.

Sturturnar í Sporthúsinu fá svo fulla stjörnugjöf hjá mér, frábærar heitar og góður kraftur - þvílíkur munur.

laugardagur, nóvember 06, 2004

Fleiri átaksgellur

Var að bæta við linkum á fleiri átaksgellur, þetta er aldeilis að verða stórt net hjá okkur, ættum að halda árshátíð átaksgellna

föstudagur, nóvember 05, 2004

Byrjuð

Tadadaraddara....

Það tókst ég er byrjuð svo er Fresnius fyrir að þakka. Hringdi í mig þegar hún var búin í skólanum og vildi fá mig með sér en þá var ég ekki á bíl þannig að ég sá ekki fram á að ég kæmist en haldið þið ekki að hún hafi boðist til þess að kippa mér með og keyra mig svo aftur heim þessi elska og ég þáði þetta góða boð. Svo svitnuðum við saman kellurnar og haldið þið að dúllan hafi ekki boðið mér í súpu á eftir. Þannig að í dag er ég búin að fá tvö súper-dúper góð boð og dagurinn ekki búin enn...

Fer svo aftur á þriðjudaginn og þá fæ ég lykil og kall í kaupbæti sem kennir mér á tækin og tólin - hlakka til þess.

fimmtudagur, nóvember 04, 2004

Búin að kaupa...

...kort í Sporthúsinu og ætla að fá mér æfingalykil og á eftir að sjá hvenær ég kemst kennslu á tækin, þannig að þetta er alveg að bresta á og ég er búin að binda mig þarna næstu 8 mánuðina og ef það gengur vel þá ætla ég að fá mér margra ára kort næst, þetta á jú að verða lífsstíll. Part af programmet!! Hlakka til að byrja og svitna og svitna.


 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com